Greinasafn mánaðar: October 2014

Styttan af Einari Benediktssyni

Skrifað um October 31, 2014, by · in Flokkur: Almennt

Árið 1964 var eg staddur á Klambratúni, þegar styttan af Einari Benediktssyni var afhjúpuð. Eg heyrði þá, þegar Örlygur Sigurðsson vék sér að Ásmundi Sveinssyni og sagði við hann eitthvað í þeim dúr, að nú dytti umferðarhraði niður á Miklubraut, því að allir héldu, að Einar væri umferðarlögregluþjónn, þar sem hann blasti við sjónum manna. […]

Lesa meira »

Póstur

Skrifað um October 29, 2014, by · in Flokkur: Almennt

  Í dag þurfti eg að senda smá blaðastranga austur á Egilsstaði með póstinum (nánar 46 blöð af A3). Í fyrstu þótti mér dýrt að borga 800 krónur fyrir sendingu. Þá varð mér litið upp og sá þá auglýsingu frá póstinum, sem sýnir, hvernig póstsamgöngum er háttað á Íslandi á tækniöld. Allir verða að fá […]

Lesa meira »

Kettir fyrir bjór

Skrifað um October 28, 2014, by · in Flokkur: Almennt

Valtýr Albertsson (1896-1984) frá Flugumýrarhvammi var mikils metinn læknir hér á landi í áratugi. Að loknu prófi héðan frá H.Í. hélt hann til Noregs í framhaldsnám og las lífeðlisfræði við háskólann í Osló veturinn 1924/25. Þennan sama vetur dvöldu allnokkrir Íslendingar í Osló við nám og störf eða höfðu þar stutta viðdvöl. Af þeim má […]

Lesa meira »

Hedwigia – brámosar

Skrifað um October 27, 2014, by · in Flokkur: Mosar

Ættkvíslin Hedwigia P. Beauv., brámosar, er eina ættkvíslin í ættinni Hedwigiaceae (brámosaætt) og innan kvíslar eru aðeins fjórar tegundir kunnar. Á Norðurlöndum vaxa þrjár, en aðeins ein á Íslandi. Sérstök lýsing á ættkvísl er því óþörf. Hedwigia er dregið af nafni þýzks manns, sem hét Johann Hedwig (1730-1799) og oft hefur verið kallaður faðir mosafræðinnar. […]

Lesa meira »

Funaria Hedw. – búamosar

Skrifað um October 8, 2014, by · in Flokkur: Mosar

Til ættkvíslarinnar Funaria Hedw. teljast nú um 200 tegundir. Flestar þeirra vaxa á tempruðum og heittempruðum slóðum og mynda litla bólstra eða breiður á skuggsælum og svölum stöðum. Plöntur eru 3-5 cm á hæð, uppréttar, skærgrænar til gulgrænar. Þær eru jafnan einærar eða tvíærar og fáeinar fjölærar. Stöngull er ógreindur, nema neðarlega á stöngli vex […]

Lesa meira »

Cirriphyllum Grout – broddmosar

Skrifað um October 5, 2014, by · in Flokkur: Mosar

Cirriphyllum Grout – broddmosar Mosar þessarar ættkvíslar, Cirriphyllum Grout, eru liggjandi blaðmosar, glansandi grænir, allstórvaxnir eða í meðallagi stórir. Plöntur eru fjaðurgreindar eða óreglulega greinóttar. Stofnblöð niðurhleypt, egglaga til langegglaga, mjókka snögglega fram í stuttan til langan, mjóan eða breiðan odd. Rif nær upp eða upp fyrir blaðmiðju. Frumur í blaðmiðju aflangar og mjóar, lengd […]

Lesa meira »

Ættkvíslin Brachythecium W. P. Schimper, lokkmosar, er í víðri merkingu (sensu lato) allstór ættkvísl með um 300 tegundum. Að vísu hefur verið höggvið í hana hin síðari ár (kvíslirnar Brachytheciastrum og Sciuro-hypnum), svo að nú eru kannski ekki nema um 150 tegundir henni tilheyrandi. Ættkvíslin hefur þótt erfið í greiningu, því að tegundir eru náskyldar. Alltaf […]

Lesa meira »

Encalypta Hedw. – klukkumosar

Skrifað um October 2, 2014, by · in Flokkur: Mosar

Encalypta Hedw. – klukkumosar Til ættkvíslarinnar Encalypta Hedw. – klukkumosa teljast um 25 tegundir. Hér á landi vaxa sex tegundir en samtals 15 annars staðar á Norðurlöndum. Þetta eru uppréttar og kvíslgreindar, brúnar til gulgrænar plöntur, allt að 5 cm á hæð. Blöð eru stór, tungu- til lensulaga, snubbótt eða ydd og oftast með hárodd. […]

Lesa meira »